Fyrstu sólarhringana
í kolvetnasvelti klárast glýkógenbirgðir líkamans sem eru í vöðvum og lifur.
Eftir það fer sykurnýmyndun af stað þegar lifrin breytir próteinum/amínósýrum í
glúkósa til að halda blóðsykrinum stöðugum og næra heilann sem brennir glúkósa
undir eðlilegum kringumstæðum. En eftir um það bil viku fer lifrin að framleiða
ketóna úr fitu til að spara prótein sem þurfa að nýtast til vöðvauppbyggingar
og viðgerða. Heilinn aðlagast því að nota ketóna í staðinn fyrir glúkósa. Aðrar
frumur líkamans geta nýtt fituna beint, nema rauðu blóðkornin sem nýta þann
litla glúkósa sem er til staðar og kemur úr fitu- og amínósýrubruna.
Ketógenískt fæði
Ketógenískt
fæði er það kallað þegar kolvetnaneyslan er mjög skert (20-50 g á dag), hóflega
er borðað af próteini en ótakmarkað magn af fitu. Þetta fæði viðheldur ketónaframleiðslu
lifrarinnar, svokallaðri ketósu, og var þróað snemma á þriðja áratug síðustu
aldar sem meðferð fyrir flogaveik börn. Ketógenískt fæði hefur sýnt sig að
fækka flogum um meira en helming hjá yfir 50% barnanna og 10-15% þeirra verða
einkennalaus, fá engin flog (1,2). Ástæðan er óljós en ketógenískt fæði gæti
haft svipuð áhrif á aðra taugasjúkdóma, eins og Parkinson og Alzheimer
sjúkdóminn (3). Vísbendingar eru um að þó flogaveiku börnin eftir einhverja
mánuði eða ár, fari aftur að borða kolvetnaríkara fæði, þá geti þau hugsanlega
haldið árangrinum að einhverju leyti að minnsta kosti, flogin komi ekki jafn
ört og áður en meðferðin hófst (2).
Aukaverkanir
En ketógenískt
fæði hefur aukaverkanir. Vaxtarskerðing er það þegar börn ná ekki fullum vexti,
verða ekki eins hávaxin og þau gætu annars orðið. Vaxtarskerðing getur verið vísbending
um að líffæri líkamans hafi ekki náð fullum þroska. Langvarandi svelti hefur
þessi áhrif á börn eins og hefur oft í gegnum söguna gerst þar sem
hungursneyðir geysa. Börn á ketógenísku fæði geta líka orðið fyrir
vaxtarskerðingu, þó þau hafi nægt aðgengi að fitu og próteinum og borði sig
södd. Beinmassinn rýrnar svo þau verða viðkvæm fyrir beinbrotum og hætta á
nýrnasteinum eykst (1).
Ketógenískt
fæði hefur sýnt sig að stuðla að þyngdartapi hjá fullorðnum og hafa ýmis áhrif
sem geta gagnast fólki með sykursýki af tegund 2 (4) því þegar blóðsykur lækkar
sökum takmarkaðrar kolvetnaneyslu, seytir brisið minna insúlíni í blóð og
insúlínnæmi eykst. Áhrif á áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma eru flest eða öll
jákvæð, alla vega til skamms tíma. En ketógenískt fæði hefur líka aukaverkanir
á fullvaxið fólk þó flestar séu þær skammvinnar. Sætur keimur af andardrætti, tap
á söltum úr líkamanum, óþægilegir krampar í fótleggjum, flensutilfinning,
orkuleysi, þokuhugsun, harðlífi, höfuðverkur, þorsti, tíð þvaglát og meltingartruflanir
eru þær helstu. Þetta gengur yfir hjá flestum þegar líkaminn aðlagast.
Mikilvægt að vanda sig
Ein ástæða
þess að fólk léttist á ketógenísku fæði er sú að ef maður útilokar heilu
fæðuflokkana úr mataræðinu, þá minnkar orkuinntaka ósjálfrátt. Ef fitan í
fæðinu dugar ekki fyrir allri þeirri orku sem maður eyðir er gengið á
líkamsfituna. Aðrar skýringar eru hærri grunnorkubrennsla heldur en á fituskertu fæði og
aukin seddutilfinning vegna lægra insúlíns. Ástæða þess að ýmsir áhættuþættir sykursýki
og hjarta- og æðasjúkdóma fara í rétta átt gætu líka tengst þyngdartapinu. Sá sem
er of feitur og missir 5-10% líkamsþyngdar á fituskertu fæði minnkar hættu á að
þróa með sér sykursýki um 58% (5,6).
Þó það sé
óhætt fyrir flesta að framkalla ketósu í líkamanum, þá geta sumir upplifað
næringarskort eða næringarójafnvægi. Á ketógenísku fæði getur skapast skortur á
kalki, járni og B-vítamínum auk trefja. Það er því mikilvægt að vanda til
verka, borða nógu fjölbreytta fæðu úr þeim flokkum sem leyfðir eru og taka
fæðubótarefni ef þörf er á. Gott er að hafa samráð við næringarfræðing.
Langtímaáhrif?
Lengri
rannsóknir á ketógenísku fæði ná ekki yfir nema 12-24 mánuði. Það er þess vegna
lítið vitað um raunveruleg langtímaáhrif af ketógenísku fæði á nýrun, beinin og
hjartað. Og það er erfitt að halda sig við svona strangt fæði til lengdar. Því
miður fara sumir úr einum öfgum í aðra, þeir missa tökin á kolvetnaneyslunni og
fitna hratt og mikið.
Grundvallaratriði
er að þau kolvetni sem eru borðuð séu holl, þe grænmeti, ávextir, heilkorn og hreinar
mjólkurvörur án viðbætts sykurs. Margir sem reyna ketógenískt fæði detta í þá
gryfju að neita sér um ávexti, brauð og aðrar kornvörur, kartöflur, hrísgrjón
og pasta en ráða ekki við kolvetnalöngunina og leyfa sér sætindi. Ef þeir vilja
viðhalda ketósu verður magnið að vera afar takmarkað.
Klínískar
leiðbeiningar um næringarmeðferð við sykursýki 2 (7) bjóða upp á þrjár leiðir
sem allar geta stuðlað að þyngdartapi og betri blóðsykurstjórnun. Ein þessara
leiða er lágkolvetnafæði. Þetta er ekki hið eiginlega ketógeníska fæði. Inni í
þessu fæði er einn ávöxtur á dag, hafragrautur og hrein jógúrt en öllu brauði,
kartöflum, hrísgrjónum og pasta er sleppt. Samt sem áður er þeim sem hafa
skerta nýrnastarfsemi ekki ráðlagt að reyna þetta fæði og þeir sem hafa hátt
LDL kólesteról, þeir sem nota insúlín eða eiga á hættu að fá sykurfall verða að
láta lækni eða næringarfræðing fylgjast með sér.
Niðurstaða
Kolvetnasvelti
um lengri tíma er sannarlega mögulegt, en ekki er víst það sé skynsamlegt, alla
vega ekki fyrir hvern sem er.