Þegar ég fékk fyrsta fjölgírahjólið mitt
fyrir löngu síðan vandi ég mig á að hanga alltaf í einhverjum meðalgír. Ég
kunni ekki á gírana, og var ekki sú manngerð að prófa mig áfram.
Það breyttist þegar ég kynntist skólabróður
mínum sem vann á reiðhjólaverkstæði með náminu. Hann sagði mér í stuttu máli
nokkur grundvallaratriði um notkun gíranna. Við það fékk ég kjarkinn til að
byrja að prófa mig áfram. Núna nota ég alla gírana óhrædd. Og þvílíkt frelsi!
Leiðist þér að hjóla upp brekku og í mótvindi?
Síðan þá hef ég hitt nokkra sem eru í sömu
sporum og ég var á sínum tíma. Þeir eru tregir til að hjóla, eða vilja bara
hjóla í góðu veðri á jafnsléttu.
Mig langar að deila með ykkur
grundvallarreglunum sem komu mér upp úr þeim heftandi hjólförum að hanga alltaf
í sama gírnum.
Ég vil taka það fram að fræðilega veit ég
ekkert um reiðhjól eða gíra. Orðalag og hugtök eru heimasmíðuð.
Grófstilling og fínstilling
Það eru tvö gírasett á dæmigerðu reiðhjóli.
Annað er með fáum gírum, yfirleitt þremur. Hitt er með fleiri gírum, uþb. fimm
til átta. Þú skiptir um gír með höndunum, annað hvort er það innbyggt í stýrið
eða þú notar sveif undir stýrinu.
Öðru settinu stýrir þú með annarri
hendinni, hinu settinu með hinni hendinni. Settið með fáu gírunum er
grófstilling (léttur, meðal, þungur), settið með mörgu gírunum er fínstilling.
Grundvallarreglurnar
1) Þú þarft að knýja hjólið með fótstigunum
á meðan þú skiptir um gír. Hjólið
fer ekki í gírinn fyrr en þú knýrð það áfram.
2) Keðjan getur hrokkið af tannhjólinu ef
þú ert í mjög lágum gír á öðru settinu, en mjög háum gír á hinu. Ef þú ert að fara upp bratta brekku, stilltu
bæði settin á lágan gír. Ef þú ert á jafnsléttu og vilt auka hraðann, hækkaðu
um gír á báðum settunum. Ef þú ert á jafnsléttu eða í litlum halla og vilt fara
þér hægt, stilltu bæði settin á meðalgír.
3) Það er freistandi að taka tilhlaup,
hjóla hratt að brattri brekku til að létta sér fyrstu metrana í brattanum. Það
er samt betra að vera búinn að koma sér í lágan gír, áður en brattinn verður
verulegur. Í miklum bratta kemur svo mikið tog á keðjuna að það verður erfitt
að skipta um gír.
4) Gírar vanstillast tiltölulega fljótt.
Flestir (alla vega ég) draga að fara með hjólið og láta stilla gírana. Það er
vel hægt að hjóla þó gírarnir séu ekki nýstilltir. Í millitíðinni er ágætt að
hafa í huga að forðast allra lægstu gírana á settinu með mörgu gírunum. Þegar
gírarnir eru vanstilltir getur keðjan hrokkið af tannhjólinu á lægstu gírunum.
5) Vanstilltir gírar hlýða illa þegar þú
ætlar að skipta í næsta gír fyrir neðan eða ofan. Þá er betra að fara upp eða
niður um nokkra gíra í einu.
6) Keðjan getur hrokkið af tannhjólinu sama
hvaða varúðarráðstöfunum þú beitir. Þá er ekkert annað að gera en að stíga af
hjólinu, snúa því á hvolf, og þræða keðjuna aftur upp á tannhjólið. Haltu um
keðjuna með annarri hendinni og snúðu fótstigunum með hinni hendinni þar til
tannhjólið nær að grípa keðjuna. Þetta tekur örstutta stund og þarf enga
sérþekkingu til. Einu leiðindin eru smurolían, en þú þværð hana bara af þér
þegar á áfangastað er komið.
Góða ferð!