Showing posts with label hreyfing. Show all posts
Showing posts with label hreyfing. Show all posts

Wednesday, July 16, 2014

Kanntu á gírana á reiðhjólinu þínu?



Þegar ég fékk fyrsta fjölgírahjólið mitt fyrir löngu síðan vandi ég mig á að hanga alltaf í einhverjum meðalgír. Ég kunni ekki á gírana, og var ekki sú manngerð að prófa mig áfram.

Það breyttist þegar ég kynntist skólabróður mínum sem vann á reiðhjólaverkstæði með náminu. Hann sagði mér í stuttu máli nokkur grundvallaratriði um notkun gíranna. Við það fékk ég kjarkinn til að byrja að prófa mig áfram. Núna nota ég alla gírana óhrædd. Og þvílíkt frelsi!

Leiðist þér að hjóla upp brekku og í mótvindi?


Síðan þá hef ég hitt nokkra sem eru í sömu sporum og ég var á sínum tíma. Þeir eru tregir til að hjóla, eða vilja bara hjóla í góðu veðri á jafnsléttu.

Mig langar að deila með ykkur grundvallarreglunum sem komu mér upp úr þeim heftandi hjólförum að hanga alltaf í sama gírnum.

Ég vil taka það fram að fræðilega veit ég ekkert um reiðhjól eða gíra. Orðalag og hugtök eru heimasmíðuð.

Grófstilling og fínstilling


Það eru tvö gírasett á dæmigerðu reiðhjóli. Annað er með fáum gírum, yfirleitt þremur. Hitt er með fleiri gírum, uþb. fimm til átta. Þú skiptir um gír með höndunum, annað hvort er það innbyggt í stýrið eða þú notar sveif undir stýrinu.

Öðru settinu stýrir þú með annarri hendinni, hinu settinu með hinni hendinni. Settið með fáu gírunum er grófstilling (léttur, meðal, þungur), settið með mörgu gírunum er fínstilling.

Grundvallarreglurnar


1) Þú þarft að knýja hjólið með fótstigunum á meðan þú skiptir um gír. Hjólið fer ekki í gírinn fyrr en þú knýrð það áfram.

2) Keðjan getur hrokkið af tannhjólinu ef þú ert í mjög lágum gír á öðru settinu, en mjög háum gír á hinu.  Ef þú ert að fara upp bratta brekku, stilltu bæði settin á lágan gír. Ef þú ert á jafnsléttu og vilt auka hraðann, hækkaðu um gír á báðum settunum. Ef þú ert á jafnsléttu eða í litlum halla og vilt fara þér hægt, stilltu bæði settin á meðalgír.

3) Það er freistandi að taka tilhlaup, hjóla hratt að brattri brekku til að létta sér fyrstu metrana í brattanum. Það er samt betra að vera búinn að koma sér í lágan gír, áður en brattinn verður verulegur. Í miklum bratta kemur svo mikið tog á keðjuna að það verður erfitt að skipta um gír.

4) Gírar vanstillast tiltölulega fljótt. Flestir (alla vega ég) draga að fara með hjólið og láta stilla gírana. Það er vel hægt að hjóla þó gírarnir séu ekki nýstilltir. Í millitíðinni er ágætt að hafa í huga að forðast allra lægstu gírana á settinu með mörgu gírunum. Þegar gírarnir eru vanstilltir getur keðjan hrokkið af tannhjólinu á lægstu gírunum.

5) Vanstilltir gírar hlýða illa þegar þú ætlar að skipta í næsta gír fyrir neðan eða ofan. Þá er betra að fara upp eða niður um nokkra gíra í einu.

6) Keðjan getur hrokkið af tannhjólinu sama hvaða varúðarráðstöfunum þú beitir. Þá er ekkert annað að gera en að stíga af hjólinu, snúa því á hvolf, og þræða keðjuna aftur upp á tannhjólið. Haltu um keðjuna með annarri hendinni og snúðu fótstigunum með hinni hendinni þar til tannhjólið nær að grípa keðjuna. Þetta tekur örstutta stund og þarf enga sérþekkingu til. Einu leiðindin eru smurolían, en þú þværð hana bara af þér þegar á áfangastað er komið.

Góða ferð!

Thursday, January 30, 2014

Að koma sér í form



Fyrir þá sem ekki hafa hreyft sig meira en út í bíl og inn úr bíl árum saman, er heilmikið átak að koma sér í form. Sumir hafa gert margar tilraunir sem allar hafa runnið út í sandinn. Ástæðurnar eru margvíslegar. Tímaskortur eða skortur á vilja og sjálfsaga er algengasta ástæðan. En sumir upplifa það aftur og aftur að eymsli, verkir og þreyta taka sig upp eða versna þegar þeir byrja að hreyfa sig. Þá ákveða þeir að taka sér hlé og finna strax að þeim líður betur þegar þeir hvíla sig. Þeir spyrja sig hvers vegna þeir ættu að byrja aftur að hamast ef þeim líður best í hvíld? Hvatinn til að hreyfa sig hverfur ef þeir finna ekki umbun í betri líðan eða meiri gleði, heldur upplifa verri líðan og margra daga eftirköst með tilheyrandi orku- og vinnutapi.

Auðvitað vita allir að hreyfingarleysi er ekki gott til langs tíma. Þá er hætt við þyngdaraukningu, þrek og þol minnka, vöðvastyrkur sömuleiðis, hreyfigeta skerðist og stirðleiki eykst. Hreyfingarleysi stuðlar að alls kyns sjúkdómum og ótímabærum dauða.

Harðsperrur

Oft eru eymsli, verkir og þreyta eðlileg eftirköst álags á veikburða vöðva og sinafestar. Harðsperrur er eitthvað sem getur verið sársaukafullt en lagast á 2-3 dögum, og vöðvarnir verða sterkari eftir. Það verður ekki komist hjá harðsperrum ef byggja á vöðvana upp. Málið er að gefast ekki upp heldur drífa sig aftur í ræktina þrátt fyrir harðsperrurnar. Ef þú mætir reglulega finnurðu fljótt að harðsperrurnar minnka, þrek og þol eykst og vöðvarnir styrkjast með hverri vikunni. Umbunin kemur ekki strax, en hún kemur ef þú gefst ekki upp.

Fyrir aðra er málið aðeins flóknara. Eymsli þeirra, verkir og þreyta hverfa einmitt ekki ef þeir mæta aftur og aftur í ræktina til að reyna á sömu vöðvana, heldur aukast stig af stigi. Sumir í þessum sporum fá að lokum greiningu um gigtarsjúkdóm. En hreyfing er ekki síður mikilvæg fyrir gigtarsjúklinga en aðra. Hún þarf bara að vera mýkri en hreyfing annarra.

Hrós fyrir dugnað

Við erum mörg svo vön að keyra okkur áfram án þess að taka tillit til okkar. Við höfum fengið hrós fyrir dugnað, hrósið hefur verið okkar umbun. Við erum ekki bara háð hrósi annarra, heldur líka því hrósi sem við veitum sjálfum okkur þegar við erum dugleg. Þetta viðhorf höfum við tekið með okkur í ræktina. Þar höfum við ætlað að sýna sjálfum okkur hvað við værum dugleg á hlaupabrettinu, dugleg að lyfta lóðum, dugleg í hóptímanum, dugleg að komast í jógastellingarnar. Ef slík keyrsla leiðir til aukinna verkja og þreytu og jafnvel til vinnutaps er freistandi að hætta í ræktinni og sýna dugnað sinn á öðrum vettvangi, annað hvort í vinnu eða heima fyrir. Hreyfingin verður útundan.

Sjálfsumhyggja

Þegar við erum komin í þetta öngstræti þurfum við að læra að sýna okkur umhyggju óháð dugnaði. Sjálfsumhyggja getur falist í því að veita okkur þá hvíld sem líkaminn kallar á. En sjálfsumhyggja felst ekki síður í að veita okkur þá mildu hreyfingu sem við þörfnumst.

Málið er að byrja nógu hægt, fara nógu varlega. Fyrir þann sem hefur ekki hreyft sig að ráði árum saman er oft nóg að byrja á tíu mínútna göngu daglega eða nokkrum sinnum í viku. Ef tíu mínútur er of mikið, verkir og þreyta gera vart við sig, þá prófum við hvort fimm mínútur er mátulegt. Eftir nokkra daga af fimm mínútna æfingum treystum við okkur til að auka tímann aftur upp í tíu mínútur. Eftir nokkrar vikur er tíminn kominn upp í 15 mínútur. Þá getur verið að við finnum að við höfum farið of geyst. Ef svo er ættum við hvorki að gefast upp, né heldur harka af okkur og keyra okkur áfram án tillits til verkja og þreytu. Eina ráðið er að minnka tímann aftur, niður í 7, 10 eða 12 mínútur. Við látum líkamann ráða, stillum æfingarnar eftir því hvernig okkur líður. Og smám saman styrkjumst við á ný, umbunin kemur.

Hálsrígur og höfuðverkur

Það getur verið áskorun fyrir axlir sem ekki eru í góðri þjálfun að lyfta höndum upp yfir höfuð um leið og andað er að sér, og láta handleggi síga rólega um leið og andað er aftur frá sér. Fyrir suma er nóg að byrja á að gera þessa æfingu einu sinni á dag. Eftir nokkra daga er hægt að endurtaka hana tvisvar í röð. Eftir nokkrar vikur er freistandi að halda áfram upp í tíu skipti. Þá er ekki ólíklegt að eymsli, verkir og þreyta taki sig upp. Hálsrígur og höfuðverkur segja okkur að við höfum farið of geyst. Fimm skipti er nóg, eða þrjú skipti. Það getur jafnvel verið betra að byrja á því að styrkja hálsinn með því að þrýsta sundbolta létt upp að vegg með höfðinu, áður en axlaþjálfun er hafin.

Minna er meira

Minna er meira (less is more) er eitt af mörgu gagnlegu sem ég lærði í jóga. Merkingin er sú að það að gera minna, getur gefið meiri árangur. Höfum þetta í huga þegar okkur langar í hrós fyrir dugnað. Árangur er það sem við viljum uppskera, en hvorki þrálátir verkir og þreyta né verri langtímaheilsa vegna hreyfingarleysis.

Wednesday, March 27, 2013

Stuðlar lágkolvetnalífsstíll að góðri heilsu?



Við þurfum orku til að anda, til hjartsláttar, til að hugsa, tala, melta og til að hreyfa okkur. Orkuna sækjum við í matinn sem við borðum. Orkuefnin í matnum eru kolvetni, prótein og fita.

Hvaða hlutverki gegna orkuefnin?


Kolvetni er það orkuefni sem nýtist okkur best við hreyfingu og líkamsrækt, því það brennur hraðar en hin orkuefnin. Heilinn brennir líka kolvetnum. Í blóðinu þarf alltaf að vera glúkósi (blóðsykur), sem við fáum úr kolvetnum.

Prótein eru fyrst og fremst byggingarefni vöðva, ýmissa hormóna og efnahvata (ensíma). Umfram prótein er brennt til orkumyndunar. Þá myndast úrgangsefni sem er skolað út með þvagi. Mjög mikil próteinneysla veldur álagi á nýrun og tapi á kalsíum úr beinum.

Fita er byggingarefni allra frumuhimna í líkamanum. Hún er líka forveri hormóna og ýmissa lífvirkra efna, auk þess að vera aðalorkuforði líkamans. Líkaminn brennir fitu frekar í hvíld en við áreynslu, þar sem hún brennur hægt.

Það sem skiptir mestu máli


Fyrir nokkrum áratugum síðan var mælt með vissri skiptingu orkuefnanna í fæði okkar. Lögð var áhersla á takmarkaða prótein- og fituneyslu en aukna neyslu kolvetna. Síðustu árin hafa verið uppi efasemdir um að þessi skipting sé skynsamleg, og nú er verið að vinna að endurskoðuðum norrænum næringarráðleggingum. Þær munu eftir því sem mér skilst leggja minni áherslu á skiptingu orkuefnanna, en meiri áherslu á hvernig kolvetni, hvernig fitu og hvernig prótein við borðum.

Það sem skiptir mestu máli er sem sagt úr hvaða matvælum við fáum hvert orkuefni fyrir sig, en ekki hversu mikið eða lítið af hverju orkuefni. Með öðrum orðum skiptir minna máli hversu fituríkt, próteinríkt eða kolvetnaríkt fæði okkar er. Það skiptir meira máli hvort fitan er mjúk eða hörð og hvernig hlutfallið milli ómega-3 og ómega-6 fitusýra í fæðinu er; hvort próteinið er af miklum eða litlum gæðum; hversu auðmeltanleg kolvetnin eru og hvort þeim fylgja trefjar og önnur bætiefni.

Ferskt hráefni eða unnin matvæli?


Það er betra að fá kolvetni úr grænmeti, ávöxtum og grófu kornmeti eins og hafragraut og ósætu rúgbrauði, en úr pasta, trefjasnauðu brauði, ávaxtasafa, frönskum kartöflum, hrísgrjónum, kökum, kexi og sælgæti. Það er betra að fá prótein úr fiski, kjöti, baunum, hnetum, eggjum, osti og öðrum hreinum mjólkurvörum, en úr unnum kjötvörum, próteindufti, próteinbættu sælgæti, salthnetum eða dísætum mjólkurafurðum. Það er betra að fá fitu úr lýsi, feitum fiski, ólífuolíu, repjuolíu, fituríku grænmeti eins og lárperu (avokadó) og hnetum, en úr smjörlíki, smjöri, rjóma, frönskum kartöflum, sojaolíu, maísolíu, sólblómaolíu og steikarpuru.

Í stórum dráttum má segja að ég mæli gegn unnum matvælum en með fersku hráefni. Af hverju? Af því að við vinnslu matvæla er oft bætt við sykri, salti, reykefnum eða transfitu. Þar að auki eru trefjar, vítamín, steinefni og önnur bætiefni oft fjarlægð eða eyðilögð við vinnsluna. Þetta þýðir að unnin matvæli eru orkuríkari og næringarsnauðari en ferskt hráefni. Það eru á þessu undantekningar en þetta er ágætis þumalputtaregla. Því minna sem matvæli eru unnin, því hollari eru þau.

Kolvetni sem meðlæti


Soðnar kartöflur með hýði eru ágætis meðlæti, sömuleiðis hýðishrísgrjón og jafnvel pasta úr heilhveiti. Með sumum réttum finnst okkur betra að afhýða kartöflurnar eða nota hvít hrísgrjón eða pasta og jafnvel bagettu sem er brauð úr hvítu hveiti. Slíkt meðlæti er næringarsnautt en orkuríkt. Þar með er ég ekki að segja að afhýddar kartöflur, hvít hrísgrjón og pasta eigi að fara á bannlista. En það er gott að hafa í huga að meðlæti á ekki að vera uppistaða máltíðar. Fiskur, kjöt, baunir og grænmeti eru næringarrík matvæli, sem gefa okkur nauðsynlega orku ásamt lífsnauðsynlegum bætiefnum. Orkuríkt og næringarsnautt meðlæti má þekja þriðjung af diskinum, en helst minna.

Smjör og rjómi


Eins og ég sagði eru undantekningar frá reglunni: Smjör og rjómi falla undir fersk hráefni, en þetta eru samt mjög orkurík matvæli og næringarsnauð að því leyti að í þeim eru ekki lífsnauðsynlegar fitusýrur, og afar lítið af vítamínum og steinefnum.

Mjólkurfita er, eins og kjötfita, mettuð, hörð fita. Hún er vissulega góður orkugjafi, og mikilvægt byggingarefni frumuhimna. En mettuð fita hefur slæm áhrif á blóðfitua. Auðmeltanleg kolvetni eins og sykur og hvítt hveiti hafa reyndar enn verri áhrif á blóðfituna. Auk þess geta auðmeltanleg kolvetni stuðlað að insúlínviðnámi og sykursýki 2. Ég mæli ekki með því að forðast smjör og rjóma, en borða þessar vörur í hófi. Sykur og hvítt hveiti skyldum við sömuleiðis borða í miklu hófi.

Ómega-3 fitusýrur úr fiski, lýsi og repjuolíu hafa jákvæð áhrif á blóðfituna. Ómega-6 fitusýrur úr öðrum jurtaolíum eru lífsnauðsynlegar en ættu ekki að vera yfirgnæfandi hluti þeirrar fitu sem við neytum, því þær ýta undir bólgu og gera blóðið seigara.

Góð áhrif á blóðfituna af einómettuðum fitusýrum og ómega-3 geta vegið upp slæm áhrif af mettuðum fitusýrum og ómega-6. Jafnvægið skiptir mestu máli, fjölbreytnin í fæðuvali okkar.

Hreyfing


Því meira sem við hreyfum okkur, því betur þolum við auðmeltanleg kolvetni og mettaða fitu. Þá eru orkuefnin flutt hraðar um æðarnar og inn í frumurnar, og eru notuð þar til orkumyndunar. Hjá kyrrsetufólki hlaðast orkuefnin frekar upp í æðunum eða í fituvef. Þau geta stuðlað að bólgum og stíflum í æðakerfinu, og að fitusöfnun og aukinni líkamsþyngd.

Ekki skera kolvetnin of mikið niður


Við erum mörg hver gjörn á svart-hvítan hugsunarhátt. Allt eða ekkert, gott eða vont. Einu sinni voru margir á því að fita væri vond en kolvetni góð. Nú eru sumir á því að kolvetni séu vond og fita góð. Hvorugt er rétt. Fita og kolvetni eru okkur nauðsynleg. Hlutfallið milli þeirra skiptir ekki öllu máli, en gæði fitunnar og kolvetnanna hefur mikil áhrif á heilsu okkar.

Það er erfitt að halda sig við fæði sem byggir á ströngum reglum, boðum og bönnum. Betra er að gera minni breytingar á mataræðinu, sem við getum staðið við allt lífið. Að borða hóflega matarskammta af fjölbreyttu og næringarríku fæði er það besta sem við getum gert fyrir heilsuna, auk þess að hreyfa okkur daglega og fá góða hvíld þess á milli.

Wednesday, October 31, 2012

Heilsurækt á allra færi



Þegar ég var að alast upp í Reykjavík á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar var algengast að borða ýsu og lambakjöt með kartöflum, skyr með rjóma, súrmjólk með púðursykri, og svo brauð með smjöri og osti eða harðsoðnum eggjum. Þennan mat borðuðu allflestir Íslendingar í hverri viku, ef ekki daglega. Með árstíðabundnum tilbrigðum eins og bláberjaskyri, rabarbaragraut með rjóma, slátri og rófustöppu, var þetta þokkalega hollur matur, en fábreyttur.
Í dag er fjölbreytnin meiri, en það er líka meiri munur á mataræði Jóns og Gunnu. Jón gæti til dæmis verið mun meðvitaðri um heilsuna en Gunna, eða Gunna haft mun hærri tekjur en Jón.
Heilsubúðum og veitingastöðum sem bjóða heilsukost hefur fjölgað og sömuleiðis líkamsræktarstöðvum. Þangað sækir fólk sem setur heilsuna í forgang, en mörgum þykir heilsufæði og önnur heilsurækt dýr.
Ég hef undanfarið verið að velta fyrir mér ódýrum leiðum til að öðlast betri heilsu. Og þær eru margar, þegar grannt er skoðað.
Kranavatn er ókeypis, og bæði hollt og dásamlega svalandi og gott.
Það er ókeypis að ganga, og ef við eigum hjól, þá er ókeypis að hjóla. Þetta er að sjálfsögðu miklu hollara en að sitja hreyfingarlaus í bíl. Það er líka miklu ódýrara að taka strætó en að kaupa og reka bíl. Ef við tökum strætó þurfum við að ganga út á stoppistöð, og jafnvel hlaupa ef við erum sein fyrir, svo við fáum meiri hreyfingu út úr því en að keyra á einkabíl.
Kort í líkamsræktarstöð kostar heilmikið, en í staðinn er hægt að skokka, fara í fjallgöngur, hjólatúra eða gera æfingar heima sem kostar ekki neitt. Til dæmis má setja mjólkurfernur eða bækur í plastpoka og lyfta, í stað þess að lyfta lóðum í sveittum sal úti í bæ. Svo er hægt að lyfta eigin líkama á stofugólfinu heima hjá sér með armbeygjum og öðru slíku.
Það er dýrt að fara í nudd, en það er líka vel hægt að nudda sig sjálfur heima. Þá setur maður golfbolta eða skopparabolta inn í nælonsokk, lætur svo boltann síga að aumum vöðvum, í öxlum, baki eða mjöðmum, og nuddar sér upp við vegg með boltann á milli.
Það er ódýrara að smyrja nesti og taka með í vinnuna en að fara í mötuneyti eða á kaffihús í hádeginu. Það getur líka verið hollara, ef valið stendur milli skynsamlega valins nestis annars vegar, og hins vegar mötuneytis eins og ég hafði aðgang að árum saman, þar sem nánast ekkert var á boðstólum sem gat með nokkru móti talist hollt.
Í heilsubúðum og í heilsuhornum stórmarkaðanna fæst eitt og annað sem ekki er svo dýrt í raun. Til dæmis er hægt að kaupa þurrkaðar baunir af ýmsum gerðum. Baunirnar á flestar að leggja í bleyti yfir nótt, og við það eykst rúmmál þeirra, jafnvel margfalt. Einn lítill poki af baunum dugar í margar máltíðir, og þó þurrkaða kryddið sem gott er að setja útí sé dýrt, þá dugar lítill kryddstaukur í ár eða meira. Þetta er því ódýr matur, og hollur er hann líka. Baunir eru bæði prótein- og trefjaríkar og innihalda auk þess ýmis vítamín og steinefni.
Ferskvara er dýr á Íslandi, bæði kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir, það verður að segjast eins og er. En flestir hálf- og altilbúnir réttir eru dýrari en að kaupa hráefni og elda sjálfur, enda er maður þá að borga aukalega fyrir eldun, pökkun og jafnvel framreiðslu og auglýsingar (hráefni er sjaldnast auglýst, en tilbúnir réttir eru auglýstir grimmt). Í mörgum tilvikum er líka hollara að elda úr fersku hráefni heima.
Sumir sem vita vel að þeir borða óhollan mat reyna að bæta sér það upp með því að taka fæðubótarefni. Slíkar vörur eru rándýrar, og gera oft lítið sem ekkert gagn. Það er bæði ódýrara og hollara að sleppa fæðubótarefnunum en borða í staðinn hollari fæðu.
Geðrækt er þriðja breytan í heilsujöfnunni. Því meira sem við leitum inn á við í hugleiðslu, og að dýpri merkingu í lífinu, því minni peningum eyðum við í yfirborðskennda afþreyingu, áfengi, tóbak, hárlitun, hluti og föt sem gera ekkert til að auka sanna hamingju okkar og velsæld.
Það eru því margar leiðir til að bæta heilsuna sem kosta ekki svo mikið. Það sem hindrar okkur flest í að breyta lífsháttunum er tímaskortur og vani. Það tekur vissulega smástund að leggja baunir í bleyti að kvöldi, en aðallega þarf að muna eftir því. Það tekur tíma að sjóða baunirnar daginn eftir, en á meðan þær malla er hægt að koma ýmsu í verk. Það er vissulega tímafrekara að ganga eða hjóla í vinnuna en að keyra, en á móti sparast tíminn á líkamsræktarstöðinni, fyrir utan peningana sem fóru í bensín og líkamsræktarkort.
Breytingar er best að gera í smáum skrefum og leyfa hverri breytingu að komast upp í vana áður en næsta skref er stigið. Það sem virtist erfitt og tímafrekt, verður bæði fljótlegt og auðvelt, þegar það er komið upp í vana.

Thursday, December 22, 2011

Áramótaheit - mótrök og meðrök


Áramótin nálgast óðfluga. Þá nota margir tækifærið til að strengja áramótaheit.  Gott er að slík ákvörðun eigi sér aðdraganda og sé ígrunduð og undirbúin.

Flest vitum við að við gætum lifað heilbrigðara lífi.  Við vitum líka flest hvað við þurfum að gera til að bæta heilsuna.  Við gætum sum hætt að reykja, önnur farið að stunda líkamsrækt, og enn önnur hætt í skyndibitanum og eldað mat frá grunni í staðinn.  En það er eitthvað sem hindrar okkur.  Og það getur verið árangursríkt að velta fyrir sér þessari hindrun.  Ekki til að dæma okkur fyrir leti og ómennsku, eða rífa okkur niður fyrir kjarkleysi eða stjórnleysi.  Gerum það bara til að skoða þessa innri hindrun og viðurkenna hana. 

Kannski erum við vanaföst, og sjáum enga ástæðu til að breyta því sem hefur virkað fyrir okkur hingað til.  Kannski erum við undir miklu álagi, í stöðugu kapphlaupi við tímann.  Við rétt náum að vekja börnin og klæða þau, koma þeim í skóla eða gæslu, klára vinnudaginn, versla, sækja börnin, borða, baða, svæfa.  Kannski erum við værukær, viljum lifa fyrir líðandi stund, skeytingarlaus um framtíðina.  Kannski erum við nautnaseggir, finnst einfaldlega gott að reykja, borða hamborgara og drekka kók.  Við sættum okkur þá við hósta á morgnana, bólur í andlitinu, bjúg á fótum, skert þol og þrek.  Kannski erum við ung ennþá, og ekki farin að finna fyrir hósta, bjúgi eða þrekleysi.  Til hvers þá að hafa áhyggjur af slíku? 

Ákvörðunin um breytingu er okkar.  Það getur enginn neytt okkur til að breyta lífi okkar.  Það getur heldur enginn breytt því fyrir okkur.  Þennan sjálfsákvörðunarrétt er mikilvægt að hafa í huga.  Lífsstílsbreyting er ekkert sem við verðum eða þurfum að gera.  Hún er eitthvað sem við getum valið að gera.  Orðin “verð” og “þarf” eru gjarnan hlaðin neikvæðum tilfinningum.  Þau kalla beinlínis á mótþróa og mótrökin hrannast upp í huga okkar.  Þá getur verið léttir að ýta þessum orðum burt úr huganum, og velta í staðinn fyrir sér því frjálsa vali sem við höfum.  Hvað viljum við raunverulega, hvað er mikilvægast? 

Það eru ekki tóm mótrök og hindranir í huga okkar, þar má líka finna rök með breytingu.  Okkur munar kannski um peningana sem sparast með því að hætta að reykja.  Það er bæði ódýrara og skemmtilegra að elda frá grunni, en að kaupa tilbúinn mat.  Og kannski er okkur farið að langa í betri heilsu og líðan. 

Í stað þess að eyða orku í togstreituna í huga okkar getum við skoðað í rólegheitum hvort við finnum leiðir framhjá hindrununum.  Það má skoða án allrar fordæmingar, án “verð” og “þarf”.  Er rými í hversdegi okkar til að hlúa að okkur, heilsu okkar og líðan til framtíðar?  Gætum við skapað slíkt rými?  Fimm mínútur á morgnana í hugleiðslu, til að stilla hugann, róa taugarnar, komast inn í núið?  Tíu mínútna gönguferð í hádeginu tvisvar í viku?  Nota kvöldin til að útbúa salat, sem við tökum með í vinnuna á morgnana?  Leiðirnar eru óteljandi, og mikilvægast að við finnum okkar eigin leið.

En hvað ef við viljum hætta eða sleppa einhverju sem er orðinn vani, og okkur finnst gott?  Þá getur fyrsta skrefið verið að velta fyrir sér hvað myndi hjálpa okkur til að hætta eða sleppa.  Ef við viljum hætta að reykja, gæti hjálpað að biðja um stuðning og umburðarlyndi nánustu fjölskyldu á meðan fráhvörfin ganga yfir.  Nikótíntyggjó gæti hjálpað.  Námskeið eða hópefli með öðrum í sömu sporum gæti verið sú aðstoð sem gerði gæfumuninn.  Nokkurra mínútna hugleiðsla til að binda enda á hverja máltíð gæti skipt máli.  Ef við viljum hætta í sælgætinu og skyndibitanum, gæti hjálpað að venja sig á aðra gönguleið heim úr vinnu eða skóla, leið sem liggur ekki framhjá sjoppu eða skyndibitastað.  Það gæti líka hjálpað að hafa skál með hnetum, möndlum, rúsínum og þurrkuðum ávöxtum á borðinu, til að grípa til þegar sælgætislöngunin kallar.

Áramótin geta verið okkur hvatning til að taka ákvörðun.  Til að ákvörðunin verði árangursrík er gott að hafa velt fyrir sér rökum með og á móti breytingu, hafa fundið leiðir framhjá hindrununum og réttu hjálpartækin.