Þann 10. október síðastliðinn fylgdi Fréttablaðinu
sérblaðið Gengur vel. Þar var heilsíðuauglýsing frá fyrirtækinu Heilsanheim.is.
Auglýst var greiningartækið Food Detective sem á með mælingu á IgG4 mótefninu í
blóði að geta greint óþolsvalda úr fæðu. Mælinguna á hver sem er að geta
framkvæmt heima hjá sér. Einnig voru í auglýsingunni gefin upp nöfn fjórtán
meðferðaraðila sem framkvæma fæðuóþolsmælingu með Food Detective
greiningartækinu og gefa í kjölfarið leiðbeiningar um hvernig best er að
forðast óþolsvaldana, og hvað óhætt er að borða í staðinn.
Vandaðar vísindarannsóknir hafa ítrekað
sýnt að IgG4 mótefnamælingar eru gagnslausar með öllu til að finna ofnæmis- eða
óþolsvalda úr fæðu. Það er því hrein peningasóun að kaupa Food Detective
greiningartækið eða fara í Food Detective mælingu hjá meðferðaraðila.
Orsakir og einkenni fæðuóþols
Fæðuóþol ræsir ekki ónæmiskerfið á sama
hátt og fæðuofnæmi. Fæðuofnæmi er hægt að greina með mælingu á öðru mótefni sem
heitir IgE, en sú mæling greinir ekki fæðuóþol.
Ýmsar fæðutegundir og aukefni í fæðu geta
valdið fæðuóþoli. Fæðuóþolseinkenni eru svipuð fæðuofnæmiseinkennum, en yfirleitt
aldrei lífshættuleg. Einkennin geta verið frá húð, meltingarvegi eða
öndunarfærum, og jafnvel höfuðverkur, þreyta eða liðverkir. Einkennin koma fram
30 mín til 12 klst eftir neyslu óþolsvaldsins.
Ástæða fæðuóþols getur t.d. verið
ensímskortur. Skortur á ensíminu laktasa veldur t.d. mjólkuróþoli, því ef
laktasann vantar getur líkaminn ekki brotið mjólkursykurinn niður í
meltingarveginum. Mjólkuróþol er hægt að staðfesta með því að gefa sjúklingnum
mjólkursykur á fastandi maga og taka nokkrar blóðprufur næstu klukkustundirnar
til að fylgjast með því hvort mjólkursykurinn meltist og hækkar blóðsykurinn.
Fæðuóþol af ókunnum orsökum
Oft finnst engin ástæða fyrir fæðuóþoli og
engin aðferð til að mæla það. Einfaldast er að prófa að sleppa grunuðum
óþolsvaldi úr fæðinu í 2 vikur og fylgjast með hvort einkennin hverfa. Bæta svo
óþolsvaldinum aftur við fæðið og sjá hvort einkennin koma aftur.
Hugurinn stýrir taugakerfinu, og hefur því
áhrif á tilfinningar og líðan, líka líkamlega líðan. Væntingar okkar um bata geta valdið því að
einkenni hverfa tímabundið, jafnvel í nokkrar vikur. Ef við erum alveg viss um
að einkenni muni koma aftur þegar grunuðum óþolsvaldi er bætt við fæðið, getur
það eitt og sér valdið því að einkennin koma aftur. Þetta er gott að hafa í
huga ef okkur grunar að við séum með fæðuóþol. Best er að endurtaka tilraunina
nokkrum sinnum til að vera viss um að við höfum fundið raunverulega ástæðu
lasleikans.
Fæðuáreitispróf
Eina leiðin til að staðfesta fæðuóþol af
ókunnum orsökum er með tvíblindu fæðuáreitisprófi með lyfleysu (control). Þá
eru útbúnir tveir skammtar af samskonar mat, og hinum grunaða óþolsvaldi
blandað í annan skammtinn, án þess það breyti útliti matarins, bragði, ilmi eða
áferð. Sjúklingurinn mætir tvisvar í fæðuáreitispróf með viku millibili. Í
annað skiptið fær hann skammtinn með
óþolsvaldinum, en í hitt skiptið skammtinn án
óþolsvaldsins. Sá sem útbýr skammtana er sá eini sem veit hvor skammturinn
inniheldur óþolsvaldinn. Sá sem gefur sjúklingnum viðkomandi skammt og fylgist
með einkennunum, veit hins vegar ekki
hvor skammturinn inniheldur óþolsvaldinn, og sjúklingurinn veit það ekki
heldur. Þess vegna kallast þetta tvíblint próf, af því báðir aðilar eru blindir
fyrir því hvort viðkomandi skammtur inniheldur hinn grunaða óþolsvald.
IgG4 mótefnamæling
Mikið hefur verið reynt að finna einfaldari
og fljótlegri leið til að staðfesta fæðuóþol af ókunnum orsökum. Eitt af því
helsta sem hefur verið rannsakað er mæling á IgG mótefninu í blóði og
undirflokknum IgG4.
Því miður benda rannsóknir til þess að
mæling á IgG eða IgG4 sé gagnslaus til greiningar á fæðuóþoli. Líkami okkar framleiðir
IgG mótefni fyrir þeim fæðutegundum sem við komumst oft í snertingu við, án
þess því fylgi nokkur ofnæmis- eða óþolseinkenni. Þetta hefur t.d. verið prófað
með því að spyrja stóran hóp fólks um fæðuvenjur og einkenni sem geta bent til
fæðuóþols. IgG4 fyrir ýmsum fæðutegundum var mælt í blóði þeirra. Það mældist
hækkun á mótefninu IgG4 fyrir þeim fæðutegundum sem algengar voru í fæði
fólksins, en engin tengsl við fæðuóþolseinkenni (BMC gastroenterol. 2012; nov
21; 12:166.). Samtök Evrópskra ofnæmis- og ónæmisfræðinga (European academy of
allergy and clinical immunology) gáfu sömuleiðis út yfirlýsingu árið 2008 um að
IgG mælingar væru gagnslausar og gæfu eingöngu til kynna ítrekaða snertingu við
viðkomandi matvæli (Allergy 2008: 63 : 793-796).
Food Detective er gagnslaust próf
Hver sem kaupir Food Detective
greiningartækið og framkvæmir prófið heima, eða fer til meðferðaraðila sem
býður upp á þetta próf, fær lista yfir ýmis matvæli sem fullyrt er að hann eða hún
þoli ekki. Staðreyndin er sú að IgG4 mótefni fyrir fæðutegundum gefur bara til
kynna að maður hafi ítrekað komist í snertingu við viðkomandi fæðutegundir.
Það getur verið mjög flókið að sleppa
algengum matvælum alfarið úr fæði sínu. Það getur skert lífsgæði og valdið
næringarskorti ef ekki er borðuð nógu fjölbreytt fæða af þeim fæðutegundum sem
einstaklingurinn þolir. Oft þurfa einstaklingar með staðfest fæðuofnæmi eða
fæðuóþol að taka inn fæðubótarefni til að koma í veg fyrir skort. IgG4
mótefnamæling er ekki rétta forsendan til að taka það skref að takmarka fjölbreytni
fæðunnar.
No comments:
Post a Comment