Orthorexia nervosa er sjúkdómur sem hefur
ekki enn verið viðurkenndur af alþjóðlegum samtökum geðlækna. Sumir sérfræðingar eru samt farnir að nota þessa
skilgreiningu um fólk sem er heltekið þörf fyrir að borða “rétt”. Hvað einstaklingur
með orthorexiu telur rétt að borða og hvað rangt er einstaklingsbundið, en
oftar en ekki snýst það um að forðast aukefni, E-efni, verksmiðjuframleidd
matvæli, sykur, fitu, kolvetni, allan eldaðan mat, kjöt, mjólkurvörur eða allt
úr dýraríkinu. Munurinn á orthorexiu og
anorexiu er að einstaklingur með orthorexiu hefur ekki stórkostlegar áhyggjur
af líkamsþyngdinni, og er ekki í megrun.
Matarreglurnar snúast ekki um magn, heldur gæði. Reglurnar eru mjög
strangar og eru gjarnan rökstuddar með því að vilja borða “hreinan” mat,
“náttúrulegan” mat, “ómengaðan” mat.
Einstaklingar með orthorexiu neita sér um
mat, frekar en að láta nokkuð af bannlistanum inn fyrir sínar varir. Þeir eru margir vannærðir, og í undirþyngd,
vegna þess að þeir ná ekki að fá öll þau næringarefni sem þeir þurfa, og nægar
hitaeiningar, úr þeim mat sem er “leyfður”.
Brjóti þeir reglurnar, með því að kyngja einni rúsínu óvart, eða með því
að flippa og fá sér tvo hamborgara og hálfan lítra af kóki, finnst þeim þeir þurfa
að refsa sér með því að fasta, fara á hreinsikúr, eða gera eitthvað annað sem “bætir
fyrir brot þeirra”. Þráhyggja er
afleiðing orthorexiu, fremur en orsök.
Náttúrulæknirinn Stephen Bratman lýsti
sjúkdómnum fyrstur manna. Hann hefur
sett fram tvær spurningar sem eiga að gefa fólki vísbendingu um hvort það sé
haldið orthorexiu.
Ég hef snarað þeim lauslega á íslensku hér:
Spurning 1:
Er þér umhugaðra um að borða rétt, en að
hafa ánægju af að borða?
Spurning 2:
Veldur mataræðið þér félagslegri einangrun?
Ef báðum spurningum er svarað játandi, er
það vísbending um orthorexiu.
Á Wikipediu síðu um orthorexiu er annar
listi með fleiri spurningum.
Spurningalisti af Wikipediu:
Eyðir þú meira en 3 klst á dag í að hugsa
um hollan mat?
Finnst þér þú hafa fulla stjórn, ef þú
borðar “rétt”?
Skipuleggur þú matseðil morgundagsins, í
dag?
Hafa lífsgæði þín versnað með “réttara”
mataræði?
Ertu orðin(n) strangari við þig?
Færðu meira sjálfstraust ef þú borðar hollan
mat?
Líturðu niður á þá sem borða öðruvísi en
þú?
Neitarðu þér um mat sem þér fannst áður
vera góður, til þess að borða “rétt”?
Gerir mataræði þitt að verkum að þú átt
erfitt með að borða annars staðar en heima hjá þér, sem hefur aftur valdið því
að þú hefur fjarlægst vini og ættingja?
Finnurðu til sektarkenndar eða
sjálfsásökunar ef þú brýtur mataræðisreglurnar?
Ef þú svarar tveimur spurningum eða fleiri
játandi, gætir þú verið með væga orthorexiu, segir á Wikipediusíðunni.
Það er vel hægt að vera heilsumeðvitaður án
þess að vera haldinn sjúkdómnum orthorexiu.
Heilsusamlegt mataræði þarf nefnilega ekki að innifela lista yfir “bannaðar”
matartegundir (undantekningin eru þeir sem eru með sannanlegt fæðuofnæmi eða fæðuóþol).
Það er sem betur fer hægt að upplifa aukna orku, fallegri húð, betri meltingu, meira
jafnvægi og almennt bætta heilsu og vellíðan á fjölbreyttu, hófsömu og
öfgalausu mataræði.
Flottur pistill! Ég var einu sinni mjög upptekin af hollu mataræði og passaði mig mjög mikið á því hvað ég lét inn fyrir mínar varir og var farin að horast mikið. Held það skipti öllu að hafa gaman af að borða og njóta þess sama og aðrir borða. Finnst vera of mikið af skilaboðum um hvað er hollt og hvað ekki, að þegar maður er ungur getur maður orðið hálfringlaður og endað í orthodexíu. -Sigríður Th.
ReplyDeleteSammála, Sigríður. Njótum lífsins, hlustum á líkamann, látum okkur líða vel.
Delete