Átraskanir eins og anorexia og bulimia eru
alvarlegar geðraskanir sem geta verið lífshættulegar. Sumir taka anorexiu og
bulimiu tímabil til skiptis. Sá sem þjáist af slíkri bulimarexiu tekur löng eða
stutt sveltitímabil, en borðar þess á milli mikið magn sem hann kastar upp eða
losar sig við með öðrum hætti. Þeir sem þjást af átröskunum upplifa sterkan
ótta við að fitna og löngun til að grennast.
Réttfæðisárátta (orthorexia) er ekki
viðurkennd geðröskun, en henni hefur verið lýst, m.a. á wikipediu. Sá sem
þjáist af réttfæðisáráttu setur sér strangar reglur um hvað má borða og hvað
ekki, og líður fyrir það félagslega og jafnvel heilsufarslega. Ótti þeirra sem
þjást af réttfæðisáráttu er við óhollan eða mengaðan mat.
Ótti við sjúkdóma
Fæðubótaráráttu hef ég hvergi séð lýst, en
mig langar að gera tilraun til að lýsa henni hér. Hún minnir nokkuð á
heilsukvíða. Sá sem þjáist af heilsukvíða verður hræddur eða jafnvel sannfærður
um að vera með alvarlegan líkamlegan sjúkdóm. Hann fer oft til læknis og biður
um rannsóknir til að hrekja eða staðfesta gruninn. Þegar enginn sjúkdómur
finnst minnkar kvíðinn tímabundið. Til að losna endanlega við heilsukvíða þarf faglega
aðstoð frá sálfræðingi eða öðrum fagaðila.
Ótti við framtíðina
Sá sem þjáist af fæðubótaráráttu er ekki
endilega hræddur um að vera með
sjúkdóm, heldur óttast hann að fá
sjúkdóm, og telur fæðubótarefni vera bestu leiðina til að tryggja sér góða
heilsu í framtíðinni.
Sum fæðubótarefni geta vissulega tryggt
okkur betri heilsu. Mælt er með því að Íslendingar og aðrir sem búa norðarlega
á jörðinni taki lýsi eða annan D-vítamíngjafa, a.m.k. yfir veturinn. Ef
járnskortur mælist í blóði okkar, er okkur ráðlagt að taka járn. Konur sem
hyggja á barneignir ættu að gæta að því að fá nóg fólasín (fólat), annað hvort
úr fæðu eða sem fæðubót. Fólk með mjólkuróþol þarf oft að taka kalsíum, og þeir
sem ekki borða fisk eða taka lýsi ættu að taka ómega-3. Sumir taka fjölvítamín
með steinefnum daglega, þó ég mæli frekar með fjölbreyttri og næringarríkri
fæðu. Fæðubótarefni geta verið nauðsynleg fyrir suma, tímabundið eða jafnvel
alla ævina.
Ótti við skort
Þeir sem þjást af fæðubótaráráttu eiga aftur
á móti í erfiðleikum með að ganga framhjá heilsubúð eða lyfjaverslun, án þess
að fara og skoða hillurnar með fæðubótarefnunum. Og yfirleitt koma þeir
klyfjaðir út, eða a.m.k. búnir að kaupa sér eitt glas af nýjasta
fæðubótarefninu á markaðnum. Auglýsingar, fréttir og viðtöl sem fjalla um
fæðubótarefni vekja fyrst áhuga hjá þeim, en fljótlega breytist áhuginn í ótta
um að skorta viðkomandi efni. Þeir finna fyrir óviðráðanlegri þörf til að kaupa
efnið og taka inn.
Að taka óvart of mikið
Þetta byrjar á einu eða örfáum glösum, en
þeim fer hratt fjölgandi. Fyrr en varir eru glösin orðin 20-30 talsins með mismunandi
pillum, hylkjum, dufti, vökva eða úða, sem þeir telja sig þurfa að taka daglega
eða jafnvel tvisvar, þrisvar á dag. Fæðubótarárátta er rándýr og tímafrek. Auk
þess fylgja mörgum fæðubótarefnum vægar aukaverkanir eins og ógleði og
meltingartruflanir. Það sem er þó miklu verra er að sama efnið getur verið í
fleiri en einni tegund fæðubótarefna. Þess vegna er algengt að sá sem þjáist af
fæðubótaráráttu taki allt of mikið magn, af einu eða fleiri efnum, án þess að ætla
sér það. Það getur haft alvarlegar og jafnvel lífshættulegar aukaverkanir í för
með sér.
Að geta ekki hætt
Hjá sumum byrjar fæðubótaráráttan þegar
þeir finna fyrir einhverjum kvilla eða óþægindum. Þeir ákveða þá að reyna að
lækna kvillann sjálfir með inntöku fæðubótarefnis. Flestir myndu hætta að taka
fæðubótarefni sem þeir finna að virkar ekki gegn kvillanum, en sá sem þjáist af
fæðubótaráráttu þorir seint eða alls ekki að hætta að taka efnið. Hann óttast
að einkennin versni ef hann hættir, eða að hann muni skorta efnið og í
kjölfarið auka líkurnar á alvarlegum sjúkdómi. Í staðinn kaupir hann annað efni
í viðbót og tekur það líka, og svona koll af kolli.
Fagleg aðstoð
Sá sem þjáist af fæðubótaráráttu þarf
faglega aðstoð næringarfræðings sem fer yfir mataræðið og metur hvort það sé raunveruleg
þörf á inntöku einhverra fæðubótarefna. Einnig myndi næringarfræðingur meta
hvort bæta megi mataræðið og sleppa fæðubótarefnum í staðinn. Flestir sem þjást
af fæðubótaráráttu þurfa auk þess aðstoð frá sálfræðingi eða öðrum fagaðila til
að vinna á óttanum við heilsubrest.
No comments:
Post a Comment